Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 03. júlí 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Hjálmar Örn spáir í leik Englands og Kolumbíu
Hjálmar Örn Jóhannsson.
Hjálmar Örn Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðasti leikurinn í 16-liða úrslitum HM er framundan en England og Kolumbía mætast klukkan 18:00.

Skemmtikrafturinn Hjálmar Örn Jóhannsson er klár með sína spá fyrir kvöldið.

Hjálmar er á miklu flugi fyrir leikinn eins og margir aðdáendur enska landsliðsins.

England 4 - 0 Kolumbía
Því miður fyrir alla sem halda að að England- Kolumbía verði spennandi leikur þá verður hann það ekki, Harry Kane skorar 2 í fyrri hálfleik og óvæntur Henderson með 1 stykki.

Seinni hálfleikur verður rólegur og Englendingar setja naglann í kistuna á 83. mín og þar verður vel hvíldur Danny Welbeck nokkur. 4-0 loka niðurstaða.
Athugasemdir
banner
banner
banner