Kólumbía 1 - 1 England (England vann 4-3 í vítakeppni)
0-1 Harry Kane ('57 , víti)
1-1 Yerry Mina ('90 )
0-1 Harry Kane ('57 , víti)
1-1 Yerry Mina ('90 )
England er komið áfram í 8-liða úrslitin á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi eftir sigur á Kólumbíu í kvöld. Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni.
Leikurinn var mikil barátta og átti dómarinn í nógu að snúast. Mikið var kvartað og veinað og fékk fótboltinn ekki almennilega að njóta sín oft á tíðum.
Endaði leikurinn í vítaspyrnukeppni og tókst Englendinum loksins að sigra í slíkri keppnni á stórmóti og niðurstaðan, Englendingar eru komnir áfram í 8 liða úrslitin.
Harry Kane var valinn maður leiksins og má sjá viðtal við hann í lok leiks í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir