Sóknarmaðurinn Aron Jóhannsson er nálægt því að semja við Hammarby samkvæmt Fotboll Sthlm í Svíþjóð.
Aron er án félags en samningur hans hjá Werder Bremen var að renna út um mánaðarmótin.
Aron er án félags en samningur hans hjá Werder Bremen var að renna út um mánaðarmótin.
Hjá Hammarby á Aron að fylla skarð Viðars Arnar Kjartanssonar sem er í láni frá Rostov.
Lánssamningur Viðars rennur út 15. júlí og nokkuð ljóst þykir að hann fari aftur til Rússlands þá.
Aron er 28 ára gamall en hann hefur átt við erfið meiðsli að stríða undanfarin ár. Af þeim sökum spilaði hann einungis einn leik í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili.
Athugasemdir