Gary Martin og Benjamin Prah geta báðir spilað sinn fyrsta leik með ÍBV þegar botnliðið fær KR í heimsókn í Pepsi Max-deildinni á laugardaginn.
Gary samdi við ÍBV í síðasta mánuði eftir að hafa komist að samkomulagi um starfslok hjá Val og félagaskipti hans eru klár.
Benjamin er kantmaður frá Gana en hann kom til ÍBV í vor.
Benjamin fékk ekki leikheimild áður en félagaskiptaglugginn lokaði í maí en hann hefur æft með Eyjamönnum og er núna kominn með félagaskipti.
Báðir leikmennirnir eru í Draumaliðsdeild Eyjabita. Komast þeir í þitt lið?
12. umferð Pepsi Max-deildarinnar er ansi dreifð:
fimmtudagur 4. júlí
18:00 Valur-KA (Origo völlurinn)
föstudagur 5. júlí
19:15 Stjarnan-Grindavík (Samsung völlurinn)
laugardagur 6. júlí
14:00 ÍA-Fylkir (Norðurálsvöllurinn)
16:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
sunnudagur 7. júlí
19:15 Breiðablik-HK (Kópavogsvöllur)
mánudagur 8. júlí
19:15 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
Athugasemdir