Copa America-keppnin er í fullum gangi og fer síðari undanúrslitaleikurinn fram í nótt er Síle og Perú mætast í hörkuleik en þekkt leikkona í Perú hefur lofað því að kyssa þann leikmann þjóðarinnar sem tryggir sigur í úrslitaleiknum.
Perú hefur verið að gera fína hluti síðustu ár en nú er heldur betur mikið undir.
Perú sendi Úrúgvæ heim í 8-liða úrslitum og nú mætir liðið ríkjandi meisturum Síle.
Stephanie Cayo, þekkt leikkona frá Perú, hefur lofað að kyssa þann leikmann Perú sem tryggir sigur í Copa America. Cayo hefur verið þekkt fyrir leik sinn í þáttunum Club de Cuervos og Yucatan, sem eru á Netflix, en þetta er áhugaverð nálgun hjá henni í að hvetja leikmennina.
„Við viljum gefa koss til landsliðsins. Ég er svo að íhuga það mjög alvarlega að kyssa þann leikmenn Perú sem skorar sigurmarkið í úrslitunum. Það yrði auðvitað að vera með hans leyfi!" sagði hún á Twitter.
La fruta pic.twitter.com/SXjZQPsWwh
— Stephanie Cayo (@Stephanie_Cayo) December 19, 2018
Estoy pensando seriamente en regalarle un beso ( con permiso respectivo) al responsable de ganarle a Chile este Miércoles. 🥰🤪#CopaAmerica2019
— Stephanie Cayo (@Stephanie_Cayo) June 30, 2019
Athugasemdir