Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. júlí 2021 18:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Völsungur með sigur í toppbaráttuslag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Völsungur 2 - 1 Fjölnir
1-0 Marta Sóley Sigmarsdóttir ('25)
1-1 Sara Montoro ('44)
2-1 Sarah Catherine Elnicky ('67)

Völsungur fór með sigur af hólmi gegn Fjölni er liðin áttust við í 2. deild kvenna í dag.

Marta Sóley Sigmarsdóttir kom Húsvíkingum yfir á 25. mínútu en rétt fyrir leikhlé jafnaði Sara Montoro fyrir Fjölni.

Staðan var 1-1 þegar flautað var til hálfleiks. Um miðbik seinni hálfleiks komst Völsungur aftur yfir og í þetta skiptið var það Sarah Catherine Elnicky sem skoraði markið.

Það reyndist sigurmarkið og lokatölur 2-1 fyrir Völsung, sem er í öðru sæti með 21 stig, jafnmörg stig og topplið Fjarðab/Hattar/Leiknis. Toppliðið á þó leik til góða. Fjölnir er í þriðja sæti með 15 stig, en liðið á leik til góða á Völsung.
Athugasemdir
banner
banner
banner