Það voru fjórir leikir á dagskrá í 3. deild karla í dag og voru heldur betur óvænt úrslit.
Toppliðið Höttur/Huginn þurfti að sætta sig við tap gegn ÍH á heimavelli sínum.
ÍH er í fallbaráttu en liðið komst upp úr fallsæti með þessum sigri. Leikar enduðu 2-1 fyrir Hafnfirðinga sem komust í 2-0 um miðbik seinni hálfleiks. Knut Erik Myklebust minnkaði muninn fyrir heimamenn undir lokin.
Höttur/Huginn er áfram á toppi deildarinnar með 22 stig eftir tíu leiki. Svo kemur Augnablik með 21 stig og Elliði með 18 stig. Elliðamenn unnu góðan 3-1 heimasigur gegn Dalvík/Reyni í dag.
KFG er svo í fjórða sæti með 18 stig, en þeir eiga leik til góða á liðin fyrir ofan.
Sindri ætlar sér að vera með í baráttunni um að komast upp, þeir eru með 15 stig eftir sigur á KFS í dag. KFS komst tvisvar yfir í leiknum en Sindri sýndi mikinn karakter og landaði að lokum 4-2 sigri. Sindri skoraði tvö mörk seint í leiknum. KFS er á botni deildarinnar með sjö stig, rétt eins og Einherji.
Talandi um Einherja, þá spilaði Einherji í skemmtilegasta leik dagsins á heimavelli gegn Tindastóli. Einherjamenn voru 2-1 yfir eftir 11 mínútna leik en þá tók Tindastóll við og skoraði tvö fyrir leikhlé. Staðan var 2-3 í hálfleik fyrir Stólana. Pape Mamadou Faye var í miklu stuði og skoraði hann fernu í leiknum.
Lokatölur voru 3-6 fyrir Tindastóll í níu marka leik. Tindastóll er núna í níunda sæti með níu stig. Einherji er sem fyrr segir í fallsæti með sjö stig.
Elliði 3 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Aaron Akyeampng-Ekumah ('11, sjálfsmark)
1-1 Connor Riece George Parsons ('38)
2-1 Pétur Óskarsson ('45)
3-1 Nikulás Ingi Björnsson ('70)
Höttur/Huginn 1 - 2 ÍH
0-1 Arnar Sigþórsson ('19)
0-2 Bergþór Snær Gunnarsson ('64)
1-2 Knut Erik Myklebust ('89)
KFS 2 - 4 Sindri
1-0 Ásgeir Elíasson ('45, víti)
1-1 Mate Paponja ('55)
2-1 Víðir Þorvarðarson ('66)
2-2 Einar Karl Árnason ('67)
2-3 Abdul Bangura ('85)
2-4 Abdul Bangura ('91)
Einherji 3 - 6 Tindastóll
1-0 Björn Andri Ingólfsson ('3)
1-1 Pape Mamadou Faye ('5)
2-1 Heiðar Aðalbjörnsson ('11)
2-2 Arnar Ólafsson ('27)
2-3 Pape Mamadou Faye ('38)
2-4 Pape Mamadou Faye ('57)
2-5 Pape Mamadou Faye ('62)
2-6 Sverrir Hrafn Friðriksson ('73)
3-6 Ismael Moussa Yann Trevor ('94)
Athugasemdir