Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 03. júlí 2021 15:08
Victor Pálsson
Byrjunarlið Dana og Tékka - Danir breyta engu
Mynd: EPA
Seinni leikirnir í 8-liða úrslitum EM fara fram í kvöld en fyrri viðureignin er leikur Tékklands og Danmerkur í Baku.

Danir verða líklega án Youssef Poulsen í þessum leik en hann er að glíma við meiðsli en fær sér þó sæti á varamannabekknum.

Danmörk vann Wales sannfærandi 4-0 í 16-liða úrslitum en Tékkland vann Holland nokkuð óvænt 2-0. Danir stilla upp óbreyttu liði.

Sigurliðið í dag mun mæta annað hvort Úkraínu eða Englandi í undanúrslitum. Þau lið mætast í kvöld.

Hér má sjá byrjunarliðin í Aserbaídsjan.

Tékkland: Vaclik, Coufal, Celustka, Kalas, Boril, Holes, Soucek, Masopust, Barak, Sevcik, Schick.

Danmörk: Schmeichel, Larsen, Christensen, Kjaer, Vestergaard, Maehle, Delaney, Højbjerg, Braithwaite, Dolberg, Damsgaard.
Athugasemdir
banner
banner