Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir átti heldur betur stórleik í dag þegar Örebro mætti Rosengård í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Leikurinn endaði með óvæntu markalausu jafntefli og var Cecilía stór ástæða fyrir því að Örebro náði í stig.
Cecilía, sem er aðeins 17 ára, er á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku eftir að hafa gengið í raðir Örebro frá Fylki fyrir þessa leiktíð.
Cecilía fær fyrirsagnirnar í sænskum fjölmiðlum eins og sjá má hér að neðan, eftir stórkostlega frammistöðu sína.
Eftir leikinn þakkaði Cecilía liðsframmistöðunni fyrir stigið en það er ekki hægt að neita því að hún á risastóran þátt í því.
Örebro birti myndband af nokkrum vörslum hennar úr leiknum, myndband sem má sjá hér að neðan.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir @ceciliaran03 😎⚽️🧤 pic.twitter.com/ARtzj1DALB
— KIF Örebro (@KIFOrebro) July 3, 2021
Athugasemdir