Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. júlí 2021 16:08
Victor Pálsson
Cecilía með stórleik í jafntefli við Rosengard
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir átti virkilega góðan leik fyrir lið Örebro í Svíþjóð í dag er liðið mætti Rosengard í efstu deild.

Cecilía fékk tækifærið í byrjunarliði Örebro í dag en húnvar aðeins að leika sinn þriðja leik fyrir félagið.

Rosengard er besta liðið í Svíþjóð en Cecilía hélt hreinu fyrir lið Örebro sem náði í markalaust jafntefli á heimavelli.

Berglind Rós Ágústsdóttir var einnig í byrjunarliði Örebro og spilaði Glódís Perla Viggósdóttir með Rosengard.

Rosengard er taplaust á toppnumn með 29 stig en Örebro situr í áttundda sætinu með 11 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner