Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 03. júlí 2021 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pogba í skiptum fyrir Varane - Toby vill fara
Powerade
Toby að kveðja?
Toby að kveðja?
Mynd: Getty Images
Jules Kounde
Jules Kounde
Mynd: Getty Images
Laugardagsslúðrið er í boði Powerade og tekið saman af BBC.



Arsenal er við það að ganga frá kaupum á Ben White (23) og verður allt frágengið eftir EM. Everton og Man City hafa bæði áhuga á þessum leikmanni Brighton. (Football London)

Áhugi Man Utd á Jules Kounde (22) hjá Sevilla hefur dvínað og eru það góð tíðindi fyrir Arsenal og Tottenham sem hafa áhuga á miðverðinum United horfir frekar til Raphael Varane (28) hjá Real Madrid. (Express)

Ole Gunnar Solksjær gæti notað Paul Pogba (28) í skiptum fyrir Varane. (AS)

Arsenal fylgist með þróun mála hjá Sergio Ramos (35) en hann er líklega að ganga í raðir PSG. (Goal)

David de Gea (30) vill vera áfram hjá Man Utd. (Times)

United er tilbúið að greiða Inter 26 milljónir punda fyrir Marcelo Brozovic (28). Barca hefur einnig áhuga.

Toby Alderweireld (32) vill fara frá Tottenham. (Athletic)

Arsenal, Liverpool, Lazio og Napoli hafa öll áhuga á Sander Berge (23) hjá Sheffield United. (Sun)

Man Utd hefur hætt öllum viðræðum við Barcelona um að mögulega fá Ousmane Dembele (24) til Manchester. Dembele verður frá í um fjóra mánuði. (Sport)

Chelsea er líklegur áfangastaður Wayne Hennessey (34) sem er falur á frjálsri sölu. (Express)
Athugasemdir
banner
banner
banner