Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. júlí 2021 15:00
Victor Pálsson
Salah fer ekki með Egyptalandi - Með á undirbúningstímabilinu
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah mun ekki spila með Egyptalandi á Ólympíuleikunum sem hefjast þann 22. júlí næstkomandi.

Þetta varð staðfest í gær en Salah var ekki valinn í leikmannahóp Egyptalands eins og kannski búist var við.

Þjálfari Egyptalands, Shawky Gharib, hafði þó gefið út fyrr á árinu að það væri hans áætlun að velja Salah á mótið sem endar 7. ágúst.

Liverpool er félag Salah á Englandi og hafði engan áhuga á að hleypa sínum manni í keppnina eftir strangt prógram á síðustu leiktíð.

Hefði Salah farið þá hefði hann ekki spilað með Liverpool á undirbúningstímabilinu og væri ólíklegur í fyrstu deildarleiki liðsins.

Salah mun líklega missa úr leikjum hjá Liverpool í janúar er Egyptaland tekur þátt í Afríkukeppninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner