Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 03. júlí 2021 16:01
Victor Pálsson
Svíþjóð: Ísak lagði upp á Ara Frey í góðum sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Við fengum íslenskt mark í sænsku úrvalsdeildinni í dag er Norrkoping og Malmö áttust við í skemmtilegum leik.

Það voru tveir Íslendingar í byrjunarliði Norrkoping eða þeir Ísak Bergmann Jóhannesson og Ari Freyr Skúlason.

Norrkoping vann sterkan 3-2 heimasigur á toppliðinu og lyfti sér upp í þriðja sæti deildarinnar.

Annað mark leiksins skoraði Ari Freyr en það var Ísak sem lagði upp markið á samherja sinn í landsliðinu.

Þetta var fyrsti sigur Norrkoping í dágóðan tíma en sá síðasti var gegn AIK þann 10. maí síðastliðinn.

Norrkoping er sex stigum frá Malmö en á leik til góða í toppbaráttunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner