Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 03. ágúst 2021 18:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Fylkis og Leiknis: Arnór Borg byrjar - Raggi og nýi Daninn á bekknum
Arnór Borg
Arnór Borg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danni Finns
Danni Finns
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fylkir og Leiknir mætast á Würth vellinum í Árbæ klukkan 19:15, leikurinn er liður í 15. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Liðin eru í neðri hluta deildarinnar, heimamenn í Fylki eru í 9. sæti og Leiknir er í 7. sæti.

Fyrri leikur liðanna í sumar endaði með 3-0 sigri Leiknis á Domusnovavellinum.

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum!!!

Þrjár breytingar eru á liði Fylkis frá tapinu gegn KR í síðasta leik. Unnar Steinn, Orri Sveinn og Arnór Borg koma inn í byrjunarliðið fyrir þá Arnór Gauta, Torfa Tímoteus og Óskar Borgþórsson. Arnór og Torfi eru á bekknum ásamt þeim Malthe Rasmussen og Ragnari Sigurðssyni. Fylkir tilkynnti Malteh sem nýjan leikmann félagsins í morgun.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, gerir eina breytingu frá tapinu gegn KA í síðasta leik. Daníel Finns Matthíasson kemur inn fyrir Hjalta Sigurðsson.

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Unnar Steinn Ingvarsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
7. Daði Ólafsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
10. Orri Hrafn Kjartansson
22. Dagur Dan Þórhallsson
23. Arnór Borg Guðjohnsen
28. Helgi Valur Daníelsson
33. Guðmundur Steinn Hafsteinsson

Byrjunarlið Leiknis:
12. Guy Smit (m)
3. Ósvald Jarl Traustason
4. Bjarki Aðalsteinsson
5. Daði Bærings Halldórsson
7. Máni Austmann Hilmarsson
10. Sævar Atli Magnússon (f)
11. Brynjar Hlöðversson
18. Emil Berger
19. Manga Escobar
23. Dagur Austmann
24. Daníel Finns Matthíasson

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum!!!
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner