Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 03. september 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Ari Sigurpáls farinn aftur til Ítalíu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ari Sigurpálsson mun ekki spila meira með HK í Pepsi Max-deildinni á þessu tímabili.

Ari er farinn aftur til Ítalíu en hann hefur verið á láni hjá HK frá Bologna í sumar.

Hinn 17 ára gamli Ari skoraði eitt mark í átta leikjum með HK í Pepsi Max-deildinni.

Ari er uppalinn hjá HK en hann gekk til liðs við Bologna í fyrra.

Hann er nú farinn aftur til Ítalíu í unglingalið Bologna.

HK er í 9. sæti í Pepsi Max-deildinni með 14 stig en næsti leikur liðsins er gegn ÍA sunnudaginn 13. september.
Athugasemdir
banner
banner
banner