Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 03. september 2020 21:15
Ívan Guðjón Baldursson
Diego Costa með Covid-19 - Mandanda sýktur með franska landsliðinu
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Leikmenn Atletico Madrid tóku kórónuveirupróf eftir sumarfrí og eru tveir leikmenn hjá félaginu sýktir.

Sóknarmaðurinn Diego Costa er með Covid-19 rétt eins og kólumbíski hægri bakvörðurinn Santiago Arias.

Það eru margir leikmenn búnir að greinast með Covid-19 að undanförnu þar sem þessi bölvaði faraldur virðist ekki ætla að hætta að herja á mannkynið.

Neymar, Angel Di Maria og Leandro Paredes, leikmenn PSG, greindust með veiruna á dögunum rétt eins og Adama Traore, Paul Pogba, David Silva, Houssem Aouar og fleiri.

Nýjustu hermir fregna að þrír aðrir leikmenn PSG séu með veiruna auk franska markvarðarins Steve Mandanda.

Mandanda var með franska landsliðshópnum en hefur verið sendur heim. Þetta smit hefur vakið mikinn óhug meðal franska landsliðsins sem óttast nú að fleiri leikmenn séu smitaðir.

Frakkland á að mæta Svíþjóð og Króatíu í Þjóðadeildinni á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner