Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 03. september 2020 20:54
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikar kvenna: Auðvelt fyrir Blika á Akranesi
Agla María lagði fyrsta mark leiksins upp og skoraði tvennu.
Agla María lagði fyrsta mark leiksins upp og skoraði tvennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 0 - 5 Breiðablik
0-1 Sveindís Jane Jónsdóttir ('11)
0-2 Rakel Hönnudóttir ('20)
0-3 Agla María Albertsdóttir ('23)
0-4 Agla María Albertsdóttir ('37, víti)
0-5 Vigdís Edda Friðriksdóttir ('53)

Breiðablik er síðasta liðið til að komast í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir auðveldan sigur gegn Lengjudeildarliði ÍA í kvöld.

Kópavogsstúlkur mættu í leikinn af krafti og voru komnar í fjögurra marka forystu fyrir leikhlé.

Sveindís Jane Jónsdóttir og Rakel Hönnudóttir skoruðu áður en Agla María Albertsdóttir gerði út um leikinn með tvennu.

Vigdís Edda Friðriksdóttir skoraði fimmta markið í upphafi síðari hálfleiks og þar við sat.

Breiðablik, Selfoss, Þór/KA og KR eru í undanúrslitum í ár.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner