Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 03. september 2020 12:38
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu Beckham markið sem Sólon skoraði frá eigin vallarhelmingi
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leiknir gerði góða ferð til Vestmannaeyja í gær og vann 2-0 útsigur en þetta var fyrsta tap ÍBV í Lengjudeildinni.

Skoðaðu skýrsluna úr leiknum

Sólon Breki Leifsson, sóknarmaður Leiknis, skoraði fyrra markið frá eigin vallarhelmingi.

„SÓLON BREKI SKORAR FYRIR AFTAN MIÐJU EFTIR AÐ LEIKNISMENN UNNU HANN FYRIR UTAN TEIG, SÓLON FÆR HANN Í MIÐJUBOGANUM Á LEIKNISHELMINGNUM OG Á SKOT SEM FER YRIR HALLDÓR Í MARKINU!!! VÁ!" skrifaði Arnar Laufdal í textalýsingu Fótbolta.net.

„Sólon Breki að channela sinn innri Beckham með léttri vippu frá miðju. Litla helvítis markið. Hneygðu þig, drengur;" skrifaði Tómas Þór Þórðarson, íþróttafréttamaður, á Twitter.

ÍBV-TV sýndi leikinn í beinni en hér að neðan má sjá markið magnaða.


Athugasemdir
banner
banner
banner