fim 03. september 2020 13:04
Elvar Geir Magnússon
Upamecano ekki til Man Utd í þessum glugga
Mynd: Getty Images
Sky Sports segir að varnarmaðurinn Dayot Upamecano muni ekki ganga í raðir Manchester United í þessum glugga.

Sagt er að United hyggist ekki kaupa þennan 21 árs miðvörð RB Leipzig fyrir komandi tímabil en ekki sé útilokað að tilboð berist frá Old Trafford næsta sumar.

Njósnarar United hafa fylgst með Upamecano og hafa hrifist af spilamennsku hans.

Harry Maguire og Victor Lindelöf eru miðvarðapar United númer eitt í dag.

Annars er það að frétta af United að samkvæmt ítölskum fjölmiðlum færist Roma nær því að komast að samkpmulagi um kaupverð á Chris Smalling sem var á lánssamningi hjá félaginu á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner