Tveir leikir fóru fram í 2. deild karla í kvöld. Njarðvík fékk Reyni Sandgerði í heimsókn og botnlið Kára fékk topplið Þrótt Vogum í heimsókn.
Ivan Prskalo kom Reyni yfir strax á 8. mínútu. Benedikt Jónsson leikmaður Reynis fékk að líta rauða spjaldið á 34. mínútu.
Þrátt fyrir að vera einum færri skoraði Sæþór Ívan Viðarsson sigurmarkið fyrir Reyni.
Þróttur Vogum komst með annan fótinn upp í Lengjudeildina eftir öruggan 5-0 sigur á Kára sem féll niður í þriðju deild í kvöld.
Markaskorarana má sjá hér að neðan.
Njarðvík 0-2 Reynir S.
0-1 Ivan Prskalo
0-2 Sæþór Ívan Viðarsson
Rautt spjald: Benedikt Jónsson
Kári 0-5 Þróttur V.
0-1 Ragnar Þór Gunnarsson ('12)
0-2 Rubén Lozano Ibancos ('38)
0-3 Alexander Helgason ('57)
0-4 Rubén Lozano Ibancos ('60)
0-5 Alexander Helgason ('89)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir