Ivan Kruzliak frá Slóvakíu verður dómari á sunnudag þegar Ísland og Norður-Makedónía eigast við í undankeppni HM á Laugardalsvelli.
Kruzliak dæmir meðal annars í Meistaradeild Evrópu.
Kruzliak dæmir meðal annars í Meistaradeild Evrópu.
Kruzliak var fjórði dómari þegar Ísland tapaði 3-1 fyrir Slóvakíu í vináttulandsleik í Zilina 2015.
Dómarinn í þeim leik var Pólverjinn Pawel Raczkowski en hann verður VAR dómari á sunnudaginn.
VAR var ekki notað í tapi Íslands gegn Rúmeníu í gær þar sem bilun kom upp í tæknibúnaði.
Athugasemdir