Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 03. september 2021 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho hvatti Xhaka til að fara í bólusetningu
Xhaka er með Covid
Xhaka er með Covid
Mynd: EPA
Granit Xhaka miðjumaður Arsenal og Svissneska landsliðsins greindist með Covid á dögunum og missir væntanlega af öllum landsleikjununum í vikunni.

Það komu síðan fréttir um það að hann hafi hafnað því að fara í bólusetningu.

Það voru háar sögusagnir um að Roma hafði mikinn áhuga á að fá Xhaka til liðsins í sumar en Jose Mourinho þjálfari ítalska liðsins sendi Xhaka skilaboð á Instagram.

Xhaka setti inn mynd af sér fyrir landsleikjahléið þar sem hann var að peppa upp landsliðið fyrir komandi verkefni, svo kom í ljós að hann yrði ekki með vegna Covid smitsins. Mourinho skrifaði ummæli undir myndina þar sem hann sagði honum að drífa sig í bólusetningu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner