Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 03. september 2021 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nota aftur treyju númer 10 fyrir leikmann Chelsea
Lokomotiv Moskva
Lokomotiv Moskva
Mynd: Getty Images
Tino Anjorin 19 ára gamall leikmaður Chelsea gekk í raðir Lokomotiv Moskvu á lokadegi félagsskiptagluggans á láni út tímabilið.

Anjorin verður tvítugur í nóvember en hann er uppalinn hjá Chelsea, hann hefur leikið fimm leiki fyrir Chelsea.

Hann mun spila í treyju númer 10 hjá Lokomotiv en síðast lék Dmitri Loskov með það númer hjá félaginu en hann er algjör goðsögn þar.

Hann lék fyrst þar frá 1997–2007 og mætti aftur 2010 og lék í þrjú ár áður en hann hætti. Lokomotiv Moskva ákvað að hætta að nota treyju númer 10 eftir að Loskov hætti en hafa tekið hana fram aftur fyrir Anjorin.
Athugasemdir
banner
banner