Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 03. september 2021 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Úrvalslið samningslausra í Evrópu
Mynd: Getty Images
Goal tók saman úrvalslið samningslausra leikmanna í Evrópu.

Í markinu er Sergio Romero fyrrum markvörður Manchester United en samningur hans við félagið rann út í sumar. Hann lék 61 leik fyrir félagið á sex árum og hélt 39 sinnum hreinu. Aðeins sjö af þessum leikjum voru í Úrvalsdeildinni.

Serge Aurier er í hægri bakverði en samningi hans við Tottenham var rift á lokadegi félagsskiptagluggans. Samningur David Luiz við Arsenal rann út í sumar.

Miðjan er mjög áhugaverð en hana skipa Hatem Ben Arfa, Jack Wilshere, Ramires og Franck Ribery. Fremstir eru Carlos Tevez og Daniel Sturridge en hann fékk fjögurra mánaða bann árið 2020 frá allri fótboltaiðkunn fyrir brot á reglum um veðmál.

Sturridge hefur verið að æfa með Mallorca á Spáni að undanförnu.

Liðið í heild sinni má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner