Grótta og Fram skildu jöfn í toppbaráttu 2. deildar kvenna þar sem búið er að skipta deildinni upp í tvennt - efri og neðri hluta.
Ylfa Margrét Ólafsdóttir tók forystuna fyrir Fram en María Lovísa Jónasdóttir jafnaði fyrir leikhlé og urðu lokatölur 1-1.
Fram er á toppi efri hlutans með 32 stig eftir 13 umferðir. Grótta er í þriðja sæti með 28 stig.
ÍR, sem situr í öðru sæti, missti af tækifæri til að minnka muninn þegar liðið heimsótti ÍA.
Breiðholtsstelpur lentu tveimur mörkum undir og náðu ekki að minnka muninn fyrr en á lokakaflanum.
ÍR er með 29 stig og ÍA með 25.
Grótta 1 - 1 Fram
0-1 Ylfa Margrét Ólafsdóttir ('28 )
1-1 María Lovísa Jónasdóttir ('40 )
ÍA 2 - 1 ÍR
1-0 Samira Suleman ('39 )
2-0 Erla Karitas Jóhannesdóttir ('49 )
2-1 Lovísa Guðrún Einarsdóttir ('81 )
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|