Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 03. september 2022 18:11
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Sindri og Dalvík/Reynir stefna upp - KH fellur
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Ljóst er að Dalvík/Reynir og Sindri eru líklegustu liðin til að fara upp úr 3. deildinni eftir úrslit dagsins.


Bæði lið unnu leiki sína í dag og eru aðeins tvær umferðir eftir af deildartímabilinu.

Dalvík/Reynir lagði Elliða að velli í spennandi fimm marka leik á meðan Sindri lenti í miklum vandræðum gegn botnliði KH. Heimamenn komust í tveggja marka forystu á Sindravöllum en Victor Páll Sigurðsson skoraði tvennu í upphafi síðari hálfleiks til að jafna fyrir Hlíðastrákana.

Það var ekki fyrr en í uppbótartíma sem heimamönnum tókst að gera sigurmark. Ivan Eres skoraði þá og tryggði ótrúlega dýrmæt stig sem fleyta liðinu upp í 2. sætið.

KH er svo gott sem fallið eftir þetta nauma tap. Liðið er sex stigum frá öruggu sæti.

Sindri 3 - 2 KH
1-0 Kristinn Justiniano Snjólfsson ('39 )
2-0 Abdul Bangura ('45 )
2-1 Victor Páll Sigurðsson ('52 )
2-2 Victor Páll Sigurðsson ('56 )
3-2 Ivan Eres ('91 )
Rautt spjald: Steindór Sigurjónsson , Sindri ('90)

KFS 1 - 6 Augnablik
0-1 Daníel Smári Hlynsson ('3 )
0-2 Daníel Smári Hlynsson ('17 )
0-3 Tómas Bjarki Jónsson ('31 )
0-4 Bjarni Þór Hafstein ('54 )
0-5 Arnar Laufdal Arnarsson ('64 )
0-6 Hrannar Bogi Jónsson ('69 )
1-6 Magnús Sigurnýjas Magnússon ('84 )

Víðir 2 - 3 ÍH
1-0 Jóhann Þór Arnarsson ('12 )
1-1 Tristan Snær Daníelsson ('28 )
1-2 Dagur Traustason ('69 )
2-2 Andri Fannar Freysson ('71 )
2-3 Dagur Traustason ('82 )

Kormákur/Hvöt 0 - 4 KFG
0-1 Ólafur Bjarni Hákonarson ('50 , Mark úr víti)
0-2 Birgir Ólafur Helgason ('65 )
0-3 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('67 )
0-4 Sigurður Gunnar Jónsson ('90 )

Dalvík/Reynir 3 - 2 Elliði
0-1 Kári Sigfússon ('12 )
1-1 Borja Lopez Laguna ('18 )
2-1 Malakai Pharrelle Taylor McKenzie ('28 )
3-1 Viktor Daði Sævaldsson ('90 )
3-2 Kári Sigfússon ('91 )


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner