Þessa stundina eigast við Everton og Liverpool á Goodison Park í Liverpool borg.
Hundruðir stuðningsmanna Liverpool misstu af byrjun leiksins en þeir sáust standa fyrir utan leikvanginn þegar flautað var til leiks.
Stemningin á vellinum hjá heimamönnum var mikil en margir af stuðningsmönnum Liverpool voru ekki mættir inn á völlinn.
Ástæðan er ekki alveg ljós hvers vegna stuðningsmennirnir komust ekki inn en mikil eftirspurn hefur verið eftir miðum á leikjum sem þessum.
Rétt áður en leikurinn hófst sást í útsendingunni þegar sýnt var yfir leikvanginn að töluverður fjöldi stuðningsmanna gestanna beið enn eftir því að komast inn.
There are still 100s of fans trying to get into Goodison Park #EVELIV #EFC #LFC
— talkSPORT (@talkSPORT) September 3, 2022
Athugasemdir