Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. september 2022 11:10
Aksentije Milisic
Inter með Lord of the Rings myndband í upphitun fyrir grannaslaginn
Mynd: Getty Images

Það er stórleikur á dagskrá í dag í Serie A deildinni á Ítalíu en þá mætast AC Milan og Inter í nágrannaslag sem kallaður er Derby della Madonnina. Flautað verður til leiks klukkan 16 á San Siro leikvangnum.


AC Milan er með átta stig eftir fjóra leiki í deildinni en Inter er með níu. Leikir þessara liða eru oftast mjög fjörugir en þá einkennir mikil harka eins og gefur að skilja.

Inter leitar í smiðju The Lord of the Rings fyrir leikinn en félagið birti skemmtilegt pepp myndband í gær þar sem hitað er upp fyrir þennan stórleik.

Þar sem nýja serían The Lord of the Rings: The Rings of Power, kemur út í þessari viku, fékk fjölmiðlateymi Inter sú skemmtilegu hugmynd að tengja Lord of the Rings saman við þennan bardaga sem fer fram á vellinum.

Hér fyrir neðan má sjá þetta skemmtilega myndband og skilaboðin sem Inter lætur fylgja með.


Athugasemdir
banner
banner