Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
banner
   lau 03. september 2022 18:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nafn Jeffsy sungið í viðtali - „Það verður partý í kvöld"
Ian Jeffs, þjálfari Þróttar.
Ian Jeffs, þjálfari Þróttar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er bara geggjað. Þetta var fyrst og fremst frábær leikur," sagði Ian Jeffs, þjálfari Þróttar, eftir 3-0 sigur gegn Haukum í 2. deild í dag.

Þróttur þurfti stig úr leiknum í dag og þeim tókst að ná í þrjú. Það er þar með ljóst að þeir verða í Lengjudeildinni að ári eftir aðeins eina leiktíð í 2. deild.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 -  0 Haukar

„Ég er stoltur af leikmönnunum, öllum sem eru í þjálfarateyminu og í kringum liðið. Þetta er liðssigur og við erum rosalega ánægð með þetta. Þetta er geggjaður dagur."

Á meðan viðtalinu stóð sungu stuðningsmenn Þróttar nafn þjálfarans sem var að koma Þrótti upp um deild.

„Það er miklu skemmtilegra þegar fólk er að syngja nafnið mitt fyrir eitthvað sem gekk vel, frekar en að þau vilji losna við mig. Ég fann frá fyrstu mínútu hérna í Þrótti að þetta er frábært félag. Það var komið á erfiðan stað og það endaði þannig að þeir fóru niður um deild. Þegar ég tók við þá þurftum við að púsla þessu saman. Þetta hefur gengið vel og við erum með virkilega gott lið. Við eigum það skilið að fara upp um deild."

Hann ætlar að fagna vel í kvöld. „Það verður partý í kvöld. Það er tveggja daga frí og það er partý í tjaldinu. Allir Þróttarar eiga það skilið," sagði Jeffsy en allt viðtalið má sjá í spilaranum hérna fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner