lau 03. september 2022 16:42
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Che Adams með klúður tímabilsins
Mynd: EPA

Southampton tapaði 1-0 á útivelli gegn Wolves í dag og getur Che Adams talist skúrkurinn eftir að hafa klúðrað algjöru dauðafæri.


Adams kom boltanum í netið en markið ekki dæmt gilt vegna þess að hann notaði hendina til að skora.

Það var algjör óþarfi að nota hendina og gerði Adams það ekki viljandi, hann einfaldlega hitti boltann ekki með hausnum þegar hann ætlaði að skalla í opið mark. Ótrúlegt klúður.

Southampton er með sjö stig eftir sex umferðir en sigurinn var afar mikilvægur fyrir Úlfana. Þetta var þeirra fyrsti sigur á úrvalsdeildartímabilinu og er liðið með sex stig.

Sjáðu klúður tímabilsins


Athugasemdir
banner
banner
banner