Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. september 2022 18:46
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Jafnt í stórleik í Baskalandi - Nýi maðurinn skoraði
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA

Real Sociedad 1 - 1 Atletico Madrid
0-1 Alvaro Morata ('5)
1-1 Umar Sadiq ('55)


Real Sociedad og Atletico Madrid áttust við í stórleik í spænska boltanum í dag og tóku gestirnir frá Madríd forystuna snemma leiks.

Alvaro Morata fylgdi þá skoti eftir með marki í kjölfar hornspyrnu á fimmtu mínútu og átti viðureignin eftir að reynast hin mesta skemmtun.

Heimamenn komust nálægt því að jafna áður en Morata setti boltann aftur í netið en markið ekki dæmt gilt vegna hendi. Leikmenn Atletico voru í miðjum fagnaðarlátum þegar þeim var greint frá því að verið væri að skoða markið.

Bæði lið fengu færi til að skora áður en Umar Sadiq, sem er nýkominn til Sociedad eftir að hafa verið keyptur frá Almeria, skallaði boltann í netið til að gera jöfnunarmark snemma í síðari hálfleik.

Sociedad kom boltanum aftur í netið en dæmd rangstaða og komust gestirnir nær því að stela sigrinum en inn vildi boltinn ekki. Alex Remiro átti mjög góðan seinni hálfleik á milli stanga heimamanna og varði meðal annars mjög gott skot frá Joao Felix á 99. mínútu, undir lok uppbótartímans.

Bæði lið eru núna með sjö stig eftir fjórar umferðir.


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 32 25 6 1 70 22 +48 81
2 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
3 Girona 32 21 5 6 67 40 +27 68
4 Atletico Madrid 32 19 4 9 59 38 +21 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 32 13 12 7 46 34 +12 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
10 Getafe 32 9 13 10 38 44 -6 40
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
13 Las Palmas 32 10 7 15 30 39 -9 37
14 Alaves 32 9 8 15 28 38 -10 35
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 32 7 10 15 37 47 -10 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 32 1 11 20 31 64 -33 14
Athugasemdir
banner
banner
banner