Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 03. október 2020 13:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Chelsea gekk á lagið í seinni hálfleik á Brúnni
Chilwell skoraði og lagði upp.
Chilwell skoraði og lagði upp.
Mynd: Getty Images
Chelsea 4 - 0 Crystal Palace
1-0 Ben Chilwell ('50 )
2-0 Kurt Zouma ('66 )
3-0 Jorginho ('78 , víti)
4-0 Jorginho ('82 , víti)

Chelsea hafði betur gegn Crystal Palace þegar liðin áttust við í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrri hálfleikurinn var ekki mikið fyrir augað og gestirnir gerðu vel í að loka á sóknaraðgerðir Chelsea. Í seinni hálfleiknum gegn Chelsea á lagið.

Á 50. mínútu kom fyrsta markið og þar var að verki Ben Chilwell, sem var að spila sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni með Chelsea. Eftir klaufagang í vörn Palace barst boltinn á fjærstöngina þar sem Chilwell kom á ferðinni og hamraði boltanum í netið.

Annað mark leiksins á 66. mínútu þegar Kurt Zouma skoraði, stuttu eftir að Edouard Mendy hafði varið vel skot frá Jordan Ayew. Chilwell átti fyrirgjöf sem Zouma skallaði í netið.

Jorginho skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum áður en flautað var til leiksloka og lokatölur 4-0 fyrir Chelsea sem er komið aftur á sigurbraut í deildinni. Chelsea er í fjórða sæti með sjö stig og Palace í áttunda sæti með sex stig. Bæði lið hafa spilað fjóra leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner