Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 03. október 2020 18:26
Ívan Guðjón Baldursson
England: Leeds nálægt því að sigra gegn Man City
Rodrigo nýtti sér mistök Ederson til að gera mikilvægt jöfnunarmark.
Rodrigo nýtti sér mistök Ederson til að gera mikilvægt jöfnunarmark.
Mynd: Getty Images
Leeds United 1 - 1 Man City
0-1 Raheem Sterling ('17)
1-1 Rodrigo Moreno ('59)

Nýliðar Leeds United tóku á móti stórliði Manchester City í enska boltanum í dag og úr varð hörkuleikur.

Man City átti góðan fyrri hálfleik og skoraði Raheem Sterling snemma leiks. Leikurinn var mjög líflegur og fengu bæði lið góð færi en Man City verðskuldaði að fara inn í leikhlé með forystu.

Í síðari hálfleik skiptu heimamenn í Leeds um gír og yfirspiluðu gestina á köflum.

Rodrigo Moreno skoraði verðskuldað jöfnunarmark í kjölfar hornspyrnu snemma í síðari hálfleik. Ederson gerði slæm mistök á milli stanganna þar sem hann missti boltann beint fyrir fætur Rodrigo.

Bæði lið fengu færi til að stela sigrinum en það voru heimamenn sem fengu betri færi og voru óheppnir að koma knettinum ekki í netið. Ederson bætti upp fyrir slæmu mistökin fyrr í leiknum með frábærum markvörslum og urðu lokatölurnar 1-1 eftir skemmtilega og fjöruga viðureign.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner