Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. október 2020 16:20
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Anna Björk og Berglind töpuðu - Lyon vann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anna Björk Kristjánsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir spiluðu allan leikinn er Le Havre tapaði á heimavelli í efstu deild franska boltans.

Le Havre tapaði gegn Soyaux og gerði Camille Collin eina mark leiksins á 79. mínútu. Le Havre er með fjögur stig eftir fjórar umferðir.

Sara Björk Gunnarsdóttir var þá ekki með toppliði Lyon sem lagði Fleury 91 að velli með þremur mörkum gegn engu.

Lyon er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.

Fleury 91 0 - 3 Lyon
0-1 Melvin Malard ('69)
0-2 Wendie Renard ('79)
0-3 Nikita Parris ('84)

Le Havre 0 - 1 Soyaux
0-1 Camille Collin ('79)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner