Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. október 2020 13:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lampard: Ekki mörg lið sem skora fjögur gegn þeim
Frank Lampard.
Frank Lampard.
Mynd: Getty Images
„Það er ekki mörg lið sem ná að skora fjögur mörk gegn Crystal Palace," sagði Frank Lampard, stjóri Chelsea, í samtali við BT Sport eftir 4-0 sigur gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni.

Eftir markalausan fyrri hálfleik gekk Chelsea á lagið í seinni hálfleiknum.

„Við byrjuðum vel í fyrri hálfleiknum, en svo slökuðum við aðeins á. Við þurftum að gera meira. Það var frábært að ná að skora fjögur mörk."

Ben Chilwell spilaði sinn fyrsta deildarleik með Chelsea og hann skoraði og lagði upp. „Ben Chilwell var stórkostlegur í dag. Við þurfum að gefa strákunum sem eru að koma inn í liðið tíma en Ben hefur sýnt hvað hann getur."

Tammy Abraham var svekktur að fá ekki að taka seinna vítið sem Chelsea fékk. Lampard segir engin vandamál vera út af því atviki.

„Það er búið að leysa þetta, engin vandamál. Það er gott að Tammy var áhugasamur um að taka vítið en þú ryðst ekki í röðinni."
Athugasemdir
banner
banner