Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. október 2020 20:49
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Matti kom inn fyrir Viðar Örn í góðum sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vålerenga 4 - 1 Mjondalen
1-0 B. Finne ('45)
1-1 J. Tollas ('61, sjálfsmark)
2-1 H. Bjordal ('67)
3-1 H. Bjordal ('68)
4-1 B. Finne ('75)

Viðar Örn Kjartansson lék fyrstu 87 mínúturnar er Vålerenga lagði Mjondalen að velli í norska boltanum.

Bard Finne kom heimamönnum í Vålerenga yfir undir lok fyrri hálfleiks en gestirnir jöfnuðu eftir leikhlé.

Heimamenn gerðu út af við leikinn skömmu síðar og það tók þá aðeins átta mínútur. Henrik Bjordal skoraði tvö á tveimur mínútum áður en Finne innsiglaði sigurinn.

Matthías Vilhjálmsson byrjaði á bekknum en var skipt inn fyrir Viðar Örn á 87. mínútu.

Vålerenga er í harðri baráttu um Evrópusæti þegar tíu umferðir eru eftir af tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner