Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 03. október 2021 15:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Andri Lucas skoraði fyrir varalið Real Madrid - Dagný skoraði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslendingar gerðu gott mót um alla evrópu í dag.

Andri Lucas Guðjohnsen sem lék sína fyrstu A-landsleiki í síðasta landsliðsglugga og skoraði sitt fyrsta mark lék með Real Madrid B í dag í 2-2 jafntefli gegn Baleares. Hann skoraði seinna mark liðsins.

Honum var skipt af velli undir lok leiksins og inn í hans stað kom hinn 19 ára gamli Theo Zidane, sonur Zinedine Zidane.

Stefán Teitur Þórðarsson skoraði eitt marka Silkeborg í 4-1 sigri á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni. Kvennalið West Ham gerði jafntefli gegn Man City í dag. Dagný Brynjarsdóttir kom West Ham yfir með sínu fyrsta marki fyrir félagið.

Kvennalið Celtic vann stórsigur á Partick Thistle 6-0. Maria Catharina Ólafsdóttir Gros skoraði eitt mark.


Athugasemdir
banner
banner
banner