Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 03. október 2021 14:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Liverpool og Man City: Milner byrjar en óbreytt hjá City
Mynd: EPA
Kl 15:30 hefst stórleikur umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar Liverpool fær Man City í heimsókn. Byrjunarliðin eru klár.

Liverpool gerir eina breytingar á sínu liði frá ótrúlegum leik gegn Brentford í síðustu umferð þar sem liðin skildu jöfn 3-3. Trent Alexander-Arnold er meiddur og spilaði ekki í miðri viku gegn Porto. James Milner kemur inn í hans stað.

Origi er ekki í hóp vegna veikinda.

Byrjunarlið Manchester City er óbreytt frá góðum 1-0 sigri liðsins á Stamford Bridge um síðustu helgi. Foden, Grealish og Jesus í fremstu víglínu.

Liverpool: Alisson, Robertson, Milner, Matip, Van Dijk, Fabinho, Henderson, Jones, Jota, Mane, Salah.

Man City: Ederson, Cancelo, Walker, Dias, Laporte, Rodri, Silva, De Bruyne, Foden, Grealish, Jesus.
Athugasemdir
banner
banner
banner