Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 03. október 2021 13:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dæmdi tvo úrslitaleiki á tveimur dögum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið Breiðabliks varð Mjólkurbikarmeistari eftir 4-0 sigur á Þrótti á föstudagskvöldið.

Karítas Tómasdóttir gerði tvö mörk fyrir Breiðablik, Tiffany McCarty og Hildur Antonsdóttir skoruðu sitt markið hver.

Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmdi leikinn með stakri prýði.

Það vakti athygli að hann var mættur aftur með flautuna daginn eftir en það var á úrslitaleik bikarkeppni kvenna í handbolta er KA/Þór sigraði Fram.

Nóg að gera hjá Sigurði.

Sjá einnig:
Mjólkurbikar kvenna: Breiðablik meistari í þrettánda sinn
Athugasemdir
banner
banner