Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 03. október 2021 17:45
Brynjar Ingi Erluson
Geggjað mark Salah - „Þrír skólaðir og klína með hægri"
Mohamed Salah er engum líkur
Mohamed Salah er engum líkur
Mynd: EPA
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, gerði frábært mark í 2-2 jafntefli liðsins við Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Sadio Mane kom Liverpool yfir á 59. mínútu eftir gott spil og síðan stoðsendingu frá Salah áður en Phil Foden jafnaði með góðu skoti.

Það var síðan komið að Salah að gera annað mark Liverpool. Hann fékk boltann fyrir utan teig, fór illa með þrjá varnarmenn City áður en hann skoraði með hægri.

Hægt er að sjá markið hjá Egyptanum hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Salah


Athugasemdir
banner
banner
banner