Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 03. október 2021 19:49
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: 433.is 
Jóhann Berg ekki með gegn Armeníu og Liechtenstein
Icelandair
Jóhann Berg Guðmundsson
Jóhann Berg Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson hefur ákveðið að draga sig úr landsliðshópnum fyrir leikina gegn Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM. Það er 433.is sem greinir frá þessu í kvöld.

Jóhann Berg er einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins og hefur verið síðasta áratuginn en hann á 81 landsleik að baki og hefur skorað átta mörk.

Hann mun ekki taka þátt í landsliðsverkefninu í október vegna smávægilegra meiðsla en þetta fær 433.is staðfest frá KSÍ í kvöld.

Þá telur miðillinn líklegt að fleiri leikmenn gætu verið frá vegna meiðsla en KSÍ mun greina betur frá því á morgun.

Þetta er mikil blóðtaka fyrir íslenska liðið sem er þegar án margra lykilmanna fyrir verkefnið.
Athugasemdir
banner
banner
banner