Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 03. október 2021 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leikmenn PSG komu við í sjoppu á leiðinni til Rennes
Mynd: Getty Images
PSG og Rennes eigast nú við í frönsku úrvalsdeildinni en leikurinn hófst kl 11.

Leikurinn fer fram í Rennes en leikmenn PSG áttu flug til Rennes í morgun en því var frestað vegna veðurs. Þá þurftu þeir að taka rútu.

Gianluigi Donnarumma hefur oftar en ekki tapað baráttunni við Kaylor Navas um markvarðarstöðuna í liðinu en hann byrjar sinn þriðja leik á tímabilinu í dag. Hann lék aðeins sinn annan leik á dögunum gegn Man City í Meistaradeildinni.

Það var hans fyrsti leikur í Meistaradeildinni á ferlinum. Þá er þríeykið í fremstu víglínu á sínum stað ásamt Angel Di Maria.

Leikmenn PSG komu við í sjoppu á leiðinni til Rennes en mynd af Mbappe og Hakimi sitjandi á gólfinu í sjoppunni má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner