Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   sun 03. október 2021 22:34
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu atvikin: Rosaleg björgun hjá Rodri - Átti Milner að fá rautt?
Rodri gerði vel og kom sér fyrir boltann
Rodri gerði vel og kom sér fyrir boltann
Mynd: EPA
Liverpool og Manchester City gerðu 2-2 jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni en það má sjá allt það helsta úr leiknum í spilaranum í fréttinni.

Sadio Mane tók forystuna fyrir Liverpool eftir gott spil heimamanna áður en Phil Foden jafnaði metin með föstu skoti í fjæhornið aðeins tíu mínútum síðar.

Mohamed Salah kom Liverpool aftur yfir með glæsilegu marki þar sem hann lék á þrjá varnarmenn og jafnaði Kevin de Bruyne svo með laglegu skoti fyrir utan teig.

Spænski miðjumaðurinn Rodri bjargaði marki á 87. mínútu. Jordan Henderson tók aukaspyrnu stutt á Salah sem kom boltanum inn í teig en Ederson, markvörður City, missti af knettinum, sem barst til Fabinho. Hann var einn gegn opnu marki og þurfti bara að pota honum inn en Rodri komst fyrir skotið á einhvern ótrúlegan hátt.

James Milner var þá stálheppinn að halda sér á vellinum þegar hann braut klaufalega af sér þegar tuttugu mínútur voru eftir. Hann var á spjaldi en þessi tvö atvik má sjá í spilurunum fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner