Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 03. október 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Skotmark Tottenham framlengir við Roma
Mynd: EPA
Lorenzo Pellegrini hefur skrifað undir nýjan samning við Roma sem rennur út árið 2026.

Fyrri samningur hans við félagið hefði runnið út eftir yfirstandandi tímabil. Jose Mourinho stjóri Roma er mjög feginn að hann sé búinn að skrifa undir nýjan samning þar sem sá fyrri var að renna út og hann var með ákvæði um að hann mætti fara ef það kæmi boð í hann uppá 30 milljónir evra.

Tottenham sem Mourinho stýrði frá 2019-2021 hafði áhuga á leikmanninum ásamt Liverpool.

Hinn 25 ára gamli Pellegrini hefur leikið 160 leiki fyrir Roma og skorað 26 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner