Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 03. október 2021 21:28
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Danjuma skoraði tvö í sigri á Betis - Sevilla tapaði
Arnaut Danjuma skoraði bæði mörk Villarreal
Arnaut Danjuma skoraði bæði mörk Villarreal
Mynd: EPA
Hollenski vængmaðurinn Arnaut Danjuma skoraði bæði mörk Villarreal í 2-0 sigri á Betis í spænsku deildinni í kvöld en hann er eftirsóttur af stórliðum í Evrópu.

Fjölmörg félög sendu njósnara á leik Villarreal og Manchester United í Meistaradeildinni í vikunni þar sem Danjuma var með stoðsendingu að marki Paco Alcacer.

Danjuma skoraði þá bæði mörk Villarreal í 2-0 sigri á Betis í kvöld en fyrra markið kom undir lok fyrri hálfleiks og svo gerði hann annað mark tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Hann er nú kominn með fjögur mörk í sex deildarleikjum fyrir spænska liðið.

Getafe og Real Sociedad gerðu 1-1 jafntefli á meðan Granada vann óvæntan 1-0 sigur á Sevilla. Ruben Rochina gerði eina mark leiksins á 25. mínútu. Brasilíski varnarmaðurinn Diego Carlos var rekinn af velli undir lok leiks og missir því af næstu leikjum Sevilla.

Úrslit og markaskorarar:

Villarreal 2 - 0 Betis
1-0 Arnaut Danjuma ('45 )
2-0 Arnaut Danjuma ('69 )

Getafe 1 - 1 Real Sociedad
1-0 Sandro Ramirez ('40 )
1-1 Mikel Oyarzabal ('68 )

Granada CF 1 - 0 Sevilla
1-0 Ruben Rochina ('25 )
Rautt spjald: Diego Carlos, Sevilla ('90)
Athugasemdir
banner
banner
banner