Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 03. október 2021 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tuchel vildi halda Livramento
Mynd: Southampton
Tino Livramento leikmaður Southampton mætti sínum gömlu félögum í Chelsea í gær.

Hann fór frá Chelsea til Southampton fyrir tímabilið en honum leið mjög vel að vera mættur aftur á Stamford Bridge.

„Það er skrítið að alast upp sem Chelsea aðdáandi og koma til baka. Manni dreymir um að spila fyrir Chelsea hérna en það var mjög gaman að spila hérna fyrir framan alla, ekki bara stuðningsmennina okkar heldur líka stuðningsmenn Chelsea og fjölskylduna mína," sagði Livramento.

Thomas Tuchel stjóri Chelsea var spurður út í brottför Livramento frá Chelsea fyrir leikinn.

„Við reyndum allt til að halda honum, sýna honum framtíðina sína og möguleikana til að berjast um sæti í liðinu. Hann ákvað að fara, það var hans ákvörðun og stundum þarf maður að sætta sig við það. Ég ber engar slæmar tilfinningar til hans."
Athugasemdir
banner
banner