Everton og Tottenham áttust við í ensku úrvalsdeildinni á Goodison Park í dag. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem Andre Gomes virtist fótbrotna eftir baráttu við Son og Aurier.
Dele Alli, leikmaður Tottenham, skoraði mark liðsins. Hann sagði í viðtali eftir leik að Heung-Min Son væri algjörlega miður sín vegna atviksins.
„Þetta er ekki fallegt. Ég vildi ekki horfa of mikið á það sem gerðist. Við sendum honum okkar bestu kveðjur, hann er frábær leikmaður og það er skelfilegt að sjá svona gerast," sagði Alli.
„Við vorum í klefanum rétt áðan og Son er miður sín, hann er hágrátandi. Þetta var ekki honum að kenna. Son er ein ljúfasta manneskja sem þú finnur í boltanum, það var aldrei meiningin hjá honum að gera eitthvað svona. Ef þú sást hvernig hann brást við í kjölfarið, þá veistu það. Hann getur ekki einu sinni lyft upp hausnum þessa stundina, hann grætur mikið"
Uppbótartíminn á Goodison Park í dag var tólf mínútur vegna atviksins.
Athugasemdir