Caglar Soyuncu og Jamie Vardy voru bestu menn vallarins er Leicester lagði Crystal Palace að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Soyuncu gerði fyrra mark leiksins eftir hornspyrnu á 57. mínútu og innsiglaði Vardy sigurinn með marki undir lokin.
Vinstri bakvörður Palace, Patrick van Aanholt, þóttist lélegasti maður vallarins í einkunnagjöf Sky Sports og fékk aðeins 4 fyrir sinn þátt.
Þetta var þriðji sigur Leicester í röð og er liðið í þriðja sæti deildarinnar, með 23 stig eftir 11 umferðir.
Crystal Palace: Guaita (6), Ward (5), Tomkins (6), Cahill (5), Van Aanholt (4), Milivojevic (5), Kouyate (5), McArthur (6), Schlupp (5), Zaha (6), Ayew (5).
Varamenn: Meyer (5), Benteke (5), McCarthy (5).
Leicester: Schmeichel (7), Ricardo (7), Evans (7), Soyuncu (8), Chilwell (7), Ndidi (7), Tielemans (7), Barnes (7), Maddison (7), Perez (7), Vardy (8).
Varamenn: Gray (6)
Athugasemdir