Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 03. nóvember 2019 17:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rodgers: Leikmennirnir vilja alltaf læra og verða betri
Mynd: Getty Images
Leicester lagði í dag Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni, 0-2, á Selhurst Park. Jamie Vardy og Caglar Soyuncu skoruðu mörkin í leiknum.

Brendan Rodgers, stjóri Leicester, var ánægður með sína menn í leikslok og hrósaði sérstaklega viðhorfi leikmanna þegar kemur að því að bæta leik sinn.

„Þetta eru stór þrjú stig fyrir okkur. Við vissum að við yrðum að sýna þolinmæði og verjast vel. Leikmennirnir eru mjög einbeittir á verkefnið. Þeir eru með frábært viðhorf þegar kemur að því að bæta sig og læra meira."

„Við héldum einbeitingu þegar við sóttum og sýndum svo gæði eins og sást í seinna markinu,"
sagði Rodgers að lokum.

Leicester er í þriðja sæti deildarinnar og hefur einungis tapað gegn Manchester United og Liverpool á leiktíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner