Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 03. nóvember 2019 12:49
Ívan Guðjón Baldursson
Rúnar Már meistari í Kasakstan
Mynd: Getty Images
Tobol 0 - 1 Astana
0-1 Yuri Logvinenko ('37)

Rúnar Már Sigurjónsson var á bekknum er FC Astana tryggði sér titilinn í efstu deild í Kasakstan.

Yuri Logvinenko gerði eina mark leiksins á útivelli gegn Tobol og er Astana því með fjögurra stiga forystu fyrir lokaumferðina.

Rúnar Már var fenginn til Astana í sumar og hefur leikið algjört lykilhlutverk frá komu sinni til félagsins.

Hann er búinn að vera frá vegna meiðsla að undanförnu og gæti verið í byrjunarliðinu gegn AZ Alkmaar í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.
Athugasemdir
banner
banner